1. |
||||
hvernig á ég að segja þér satt
þegar ég veit að sannleikurinn
mun brjóta þig
brjóta mig
brjóta okkur
eftir allt, sem við höfum þó átt saman
hvern hefði grunað
að það hefði afleiðingar
að svíkjast undan
samkomulaginu, milli okkar?
eftir allt, sem við höfum þó átt saman
|
||||
2. |
Ég smánaði mig
02:09
|
|||
ég smánaði mig
í bænum um helgina
í leit að viðurkenningu
skammaðist mín,
grét smá í strætó
og sofnaði einn
ég elska ekki neinn
það elskar enginn mig
hvers virði er það að vera til?
og draga andann
í andlausum heimi
og berjast við að vera til
|
||||
3. |
||||
það er maður inní herberginnu mínu
og hann er að reykja pípu
og hann er að totta pípu
hvað er klukkan?
hvað er maðurinn að hugsa?
skyldi hann hugsa, hvað er klukkan?
eða hugsa út í buskann?
það er maður inní herberginu mínu
ætli hann viti að hann sé týndur og heima hjá mér?
er hann kannski týndur inní hausnum á sér?
hvað er í matinn?
ætlar maðurinn að borða?
þarf hann ekki að fara að sofa?
kom hann alla leið frá parís?
það er maður, og kannski á hann enga vini
hvorki gunnhildi, né guffa, né jóa, né mig
er hann bara að reyna að leita að vin?
|
||||
4. |
||||
sumarið ætlaði aldrei að kveðja
ég keyrði útumallt,
keyrði mig út,
kláraði mig,
kláraðir þú þig líka?
nú sýnist mér ekki mikið vera eftir,
fyrir okkur að tala um,
við sem vorum
óaðskiljanlegir
hefur eitthvað kannski breyst?
en sama hvað
mátt þú alltaf
heyra í mér
|
||||
5. |
||||
svo dú hún,
að nóttu,
í draumi
|
Streaming and Download help
If you like Supersport!, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp